Fyrsta persóna eintölu

Hef rekið augun í undanfarna mánuði að fólk er farið að sleppa persónufornafni í upphafi setningar í rituðu máli. Skil af hverju. Finnst stundum leiðinlegt hvað persónufornafn fyrstu persónu eintölu kemur oft fyrir.

Við prófun fæst nett kikk. Minnir hressilega á Rorschach úr Watchmen. Er þó viss um að það sé ekki ætlun brotamanna. Hafa örugglega ekki lesið Watchmen.

Ekki frá því að þetta sé gjörsamlega óþolandi. Er þeirrar skoðunar að ef fólk ætlar að stytta sér leið svona ætti það að sleppa því að tjá sig. Veit ekki um neinn sem talar svona í daglega lífinu. Finnst þetta gera skrifaðann texta viðurstyggilega tilgerðarlegann.

Held það megi kenna Þránni Bertelssyni um þetta. Tók eftir að hann gerði þetta reglulega fyrir rúmu ári í Bakþönkum í Fréttablaðinu. Var ömurlegt þá. Hefur ekki skánað með aldri. Er kannski sprottið af löngun til að tala bæði eins og blaðamaður og einstaklingur. Veit það þó ekki.

Finnst rökrétt lausn að gera Þráinn og helstu sambrotamenn að útilegumönnum. Geta ekki tjáð sig eins og fólk. Eru því ekki fólk.

9 Responses to “Fyrsta persóna eintölu”


  1. 2 Kötturinn apríl 21, 2008 klukkan 18:29

    Er sammála. :D

  2. 3 Fjóla apríl 21, 2008 klukkan 21:47

    Ég var að lesa þetta upphátt og komst að því að það hljómar eins og skjáauglýsing að hlusta á sjálfan sig tala svona hallærislega!

  3. 4 Halldór apríl 22, 2008 klukkan 01:38

    Ég er sekur um þetta athæfi, jafnvel mjög svo. Geri það þó aðeins til þess að forðast að nota orðið “ég” of oft í sömu setningu… eins og ég sé ekki samt sem áður að tala um sjálfan mig í hverri einustu setningu. Er of mikilvægur til að aðrir komist að.

    Hver á þetta blogg annars?

  4. 5 Gunni apríl 22, 2008 klukkan 08:58

    Umm… ég, Gunni. Stærðfræðivinur þinn í Frakklandi. ;)

  5. 6 Björgvin apríl 22, 2008 klukkan 11:14

    Við bjóðum Halldór velkominn til leiks. Síðastliðið árið hefur hann búið undir steini og ekki séð sér fært um að nýta sér undur internetsins greinilega.

    Við gefum honum golf-klapp….
    *klapp* *klapp*

  6. 7 Fjóla apríl 22, 2008 klukkan 11:19

    hehe.. bjöggi er farinn að nota mitt nafn til að kommenta …

  7. 8 Gunni apríl 22, 2008 klukkan 11:54

    Þið eruð tvíeitt.

  8. 9 Halldór apríl 23, 2008 klukkan 04:14

    Og klöppum fyrir Bjögga sem hefur misst af tugum commenta frá mér hjá hinum ýmsu bloggurum… þar á meðal honum sjálfum.


Skildu eftir svar




Twitter