Nýmóðins martraðir

Ég fékk martröð í nótt. Sem er svo sem ekkert voðalega merkilegt, það kemur einstaka sinnum fyrir okkur öll, en mér fannst þessi sérstaklega vel heppnuð.

Fram að þessu hafa martraðirnar mínar yfirleitt gengið út á að ég sé í hlutverki persónu í hryllingsmynd, og að hlutirnir gangi ekki sem best. Ég hef samt mjög gaman af hryllingsmyndum þannig það má deila um hversu ógnvekjandi þessar matraðir eru. Undanfarna mánuði hef ég til dæmis skemmt mér konunglega í Cloverfield, The Mist og Dawn of the Dead.

Í nótt var annað uppi á teningnum, og í fyrsta skipti í langan tíma vaknaði ég virkilega hræddur. Martröðin gekk nefninlega út á að ég var á örvæntingafullum flótta undan hópi af bankastarfsmönnum sem vildu endilega fá heimilisfangið mitt, svo þeir gætu sent mér ítarlegar skýrslur um hvað ég hefði tekið mikið út úr hraðbönkunum þeirra.

Ég er ekki frá því að undirmeðvitundinni minni hafi tekist vonum framar að laða sig að lífi þar sem engin náttúruleg rándýr eru til staðar.

3 Responses to “Nýmóðins martraðir”


  1. 1 Nafnlaus apríl 24, 2008 klukkan 16:34

    Ég leit í spegilinn og sagði ´Candyman, Candyman, Candyman, Candyman, Candyman´ og beið í nokkra stund. Ekkert gerðist,
    þá reyndi ég ´Helen, Helen, Helen, Helen, Helen´ og beið spenntur. Ekkert gerðist. Um nóttina svaf ég eins og engill.

    Nafnlaus

  2. 2 Gunni apríl 25, 2008 klukkan 12:25

    Næsta skref hlýtur að vera að leigja dvd útgáfuna af The Ring og horfa á vídjóspóluna í aukaefninu.


  1. 1 Viðbót « Sambandsleysi hugsunar Trackback við apríl 25, 2008 klukkan 18:25

Skildu eftir svar




Twitter

  • @maciakl Oh poor thing. 1 hour ago
  • Strange. Watching Stephen Baldwin is kinda like watching Alec, but horrible instead of awesome. 1 day ago
  • As it turns out, I am powerless against the combined allure of a Baldwin brother, a shark and Venice. 1 day ago
  • Hmm... more 'Generation Kill' or 'Shark in Venice'? Oh, choices, why are you so hard? 1 day ago
  • Lying in bed with a massive hangover and listening to 'Blue Jam' is very, very enjoyable. Mornings were made for this. 1 day ago