Dagar eins og í dag gera lífið aðeins skemmtilegra. Úti er 20 stiga hiti og glampandi sólskin, og ég er búinn að gera fátt annað í dag en að ráfa um á stuttermabol, lesa skáldsögur og drekka bjór. Eins og er ligg ég í sólinni úti í frímerkjastóra garðinum heima og …
Við biðjumst velvirðingar, en ekkert heyrist í Gunna vegna háværra druna.
…andskotans sjúkraflug.
Gluggaveður í Frakklandi er með öðru sniði en á Íslandi. Hér er í alvörunni það veður sem maður sér, en það hjálpar lítið þegar sjúkraþyrlunum frá spítalanum finnst ekkert jafn spennandi og að fljúga yfir húsið manns, og gera það svona fjórum, fimm sinnum á klukkutíma yfir daginn.
Ég er ekki frá því að þetta sé það næsta sem ég hef komist því að búa á stríðssvæði. Það eru verkföll og mótmæli annan hvern dag, fólk á einkabílum virðist vera haldið mikilli sjálfseyðingarþörf, og svefni mínum er raskað oft og óreglulega af þyrlum sem sveima lágt yfir. Svefni mínum á daginn, það er að segja.
En vandamálin eru til að leysa þau. Með snöggri interbotnvörpu komst ég í samband við mjög indæla menn frá Írak sem voru ekki aðeins fullir skilnings á þessu vandamáli, heldur ætla þeir að kíkja í heimsókn við fyrsta tækifæri og redda þessu. Það eina sem ég þarf að gera er að hafa nóg kúskús tilbúið, hýsa þá í tvo, þrjá daga, og setja upp eldflaugapallinn sem þeir sendu mér teikningar af. Það er svona nettur IKEA fílingur í þessu.
0 Responses to “Mig vantar eldflaugar”